Sjúkraflug TF-SIF til Kollafjarðar á Barðaströnd
Þriðjudagur 1. júlí 2003
Neyðarlínan hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:34 og óskaði að beiðni læknisins í Búðardal eftir þyrlu í viðbragðsstöðu vegna konu á sjötugsaldri sem var talin alvarlega veik. Áhöfn TF-SIF var þegar kölluð út og óskað eftir að hún væri tilbúin til flugs ef á þyrfti að halda.
Læknirinn hringdi í stjórnstöð kl. 12:42 og bað um að þyrlan færi af stað. Áhöfnin var þá kölluð út til flugs og fór TF-SIF í loftið kl. 12:55. Lent var í Kollafirði á Barðaströnd þar sem konan var stödd og hún flutt á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þangað var þyrlan komin kl. 14:39.
Landhelgisgæslu Íslands