Varðskip aðstoðar togarann Hrafn GK-111

Fimmtudagur 20. febrúar 2003.

Haft var samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 1:14 í nótt vegna togarans Hrafns GK-111 sem var með veiðarfæri í skrúfunni 90 sjómílur vestnorðvestur frá Látrabjargi.  Varðskip var í 8 klst. fjarlægð frá skipinu og hélt þegar í stað til aðstoðar. Kafari er um borð í varðskipinu en ekki var unnt að kafa niður að skrúfu togarans eins og aðstæður voru.  Varðskipið er nú á leið til Hafnarfjarðar með Hrafn GK-111 í drætti.

Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands