Mannbjörg varð er mjölflutningaskipið Trinket strandaði í innsiglingunni til Grindavíkur - Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar setti nýtt met í viðbragðsflýti

Mánudagur 17. febrúar 2003

Mannbjörg varð er mjölflutningaskipið Trinket tók niðri í slæmu veðri í innsiglingunni til Grindavíkur um hádegisbilið í dag.  Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en er hún kom á staðinn hafði björgunarskipi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Oddi V. Gíslasyni frá Grindavík, tekist að koma taugum í skipið og draga það til hafnar. Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli var einnig í viðbragðsstöðu.

Reykjavíkurradíó hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 12:49 og tilkynnti um vélarvana skip sem ætti í erfiðleikum í innsiglingunni til Grindavíkur.  Þá var búið að kalla út björgunarsveitir á Suðurnesjum.  Neyðarlínan hringdi mínútu síðar og gaf samband við hafnarstjórann í Grindavík sem óskaði eftir þyrlu til aðstoðar vegna skipsins sem hafði tekið niðri í innsiglingunni. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var þegar kölluð út, þ.e. kl. 12:54 og fór TF-LÍF í loftið 11 mínútum síðar eða kl. 13:05. Þar með var sett nýtt met í viðbragðsflýti samkvæmt upplýsingum flugdeildar Landhelgisgæslunnar.

Um er að ræða mjölflutningaskip á vegum Eimskip sem kallast Trinket en það er 1574 brt. að stærð. Um borð voru 6 skipverjar.

Hafnarstjórinn í Grindavík tilkynnti kl. 13:13 að tekist hefði að koma taugum í skipið og draga það til hafnar. TF-LÍF hélt til Reykjavíkurflugvallar kl. 13:22 og lenti þar kl. 13:31.

Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands