Flak Northrop-flugvélarinnar á botni Skerjafjarðar friðlýst

Þriðjudagur 11. febrúar 2003.

Fornleifavernd ríkisins hefur gefið út friðlýsingarskjal þar sem flak Northrop flugvélarinnar sem fannst í Skerjafirði 27. ágúst 2002 er friðlýst.  Friðlýsingin felur í sér köfunarbann yfir flakinu og í 20 metra radíus í kringum það.  Friðlýsingin gildir þar til annað verður ákveðið af Fornleifavernd ríkisins í samráði við Landhelgisgæslu Íslands og dómsmálaráðuneyti. 

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar hafa haft yfirumsjón með köfun við flakið og rannsókn á því. Þeir hafa aflað sér margvíslegra heimilda um það m.a. frá Northrop Gruman verksmiðjunum, flugsafninu í Kaliforníu og breska og norska sendiráðinu.

Eins og áður hefur komið fram fannst vélin með fjölgeislamæli sem bandaríski sjóherinn lánaði Landhelgisgæslunni síðasta sumar.  Einu merkingarnar sem hafa fundist á vélinni eru norskir einkennislitir undir vængjum og númer á olíukæli.  Flugvélin var í notkun á stríðstímum og því má reikna með sprengjum í eða við flakið.  Ekki hefur verið staðfest hvort áhöfn vélarinnar fórst er hún sökk á sínum tíma og hvort líkamsleifar eru í vélinni.

Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands

Mynd: Hrafnhildur Steinarsdóttir LHG.  Á myndinni eru starfsmenn LHG, Sigurður Ásgrímsson og Adrian King sprengjusérfræðingar, Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi og Kristín Huld Sigurðardóttir forstöðumaður Fornleifaverndar.

Mynd Adrian King: Kafarar og sprengjusérfræðingar að störfum um borð í Baldri er unnið var að rannsókn flugvélarflaksins á botni Skerjafjarðar.

Þrívíddarmynd unnin uppúr mæligögnum úr fjölgeislamælinum af flugvélarflakinu á botni Skerjafjarðar