Æfingar áhafna varðskipa hjá Slysavarnarskóla sjómanna
Þriðjudagur 28. janúar 2003.
Undanfarnar vikur hafa áhafnir varðskipanna Týs og Ægis sótt öryggisfræðslu hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Það er skilyrði fyrir lögskráningu sjómanna á skip að þeir hafi lokið slíku námskeiði og síðan þarf að sækja þá fræðslu á fimm ára fresti. Æfð var björgun úr sjó, reykköfun og eldvarnir. Áhafnir Ægis og Týs eru fyrstu skipsáhafnir sem fara á endurfræðslunámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Hluti námskeiðsins var haldinn á æfingasvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins við Úlfarsfell en þar var æfð reykköfun og slökkvistarf.
Á meðfylgjandi myndum má sjá starfsmenn Landhelgisgæslunnar og leiðbeinendur frá Slysavarnaskóla sjómanna við æfingar og fl.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands
Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsmaður á v/s Ægi: Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna ásamt Halldóri Gunnlaugssyni skipherra hjá Landhelgisgæslunni
Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsm. á v/s Ægi. Halldór Almarsson yfirleiðbeinandi í Slysavarnaskóla sjómanna ræðir við Lindu og Söru Lind, háseta í áhöfn Ægis.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson stýrim. á Tý. Áhöfn v/s Týs í verklegri æfingu í björgunargöllum.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson stýrim. á Tý. Björgunarnótin ,,Hjálpin" notuð við björgunarstörf.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson stýrim. á Tý. ,,Skipbrotsmönnum" bjargað. Björgunarnótin ,,Hjálpin" notuð. Leiðbeinandi frá Slysavarnaskóla sjómanna ásamt Jóni , Jóni Árna, Hauki og Birgi.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson, stýrim. á Tý. Steinunn og Jónas eftir reykköfun í gámi.
Mynd: Jón Páll Ásgeirsson, stýrim. á Tý. Eftir reykköfun í gámi: Sigursteinn, Haukur Davíð, Björn og Thorben.
Mynd: Guðmundur St. Valdimarsson bátsm. á Ægi. Áhöfn v/s Ægis á bóklegum þætti námskeiðsins