Þyrla sækir veikan sjómann
Þriðjudagur 19. nóvember 2002.
Hringt var frá nótaskipinu Sighvati Bjarnasyni um kl. 13:43 í dag og óskað eftir að þyrla sækti veikan sjómann um borð. Skipið var þá að síldveiðum í Víkurál vest-norð-vestur af Látrabjargi. Þyrluáhöfn var þegar kölluð út og fór þyrlan í loftið kl. 14:15. Sighvati Bjarnasyni var siglt á fullum hraða í átt að Snæfellsnesi til móts við þyrluna. TF-LÍF lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús kl. 16:35 þar sem sjúklingnum var komið undir læknishendur.
Dagmar Sigurðardóttir
upplýsingafulltrúi