Sprengjusérfræðingar kallaðir út vegna torkennilegs kassa í flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli

Föstudagur 1. nóvember 2002.

Torkennilegur kassi fannst á gólfi flugskýlisins á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli um tvöleytið í dag.  Samkvæmt varúðarreglum var svæðið rýmt og kallað á sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar auk lögreglu og slökkviliðs á Keflavíkurflugvelli.  Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar komust að raun um að engin hætta var á ferðum þar sem kassinn reyndist tómur þegar að var gáð.

Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands