Köfunarbann við flugvélarflakið í Skerjafirði enn í fullu gildi
Þriðjudagur 10. september 2002.
Í gær fóru kafarar Landhelgisgæslunnar niður að flaki Northrop-flugvélarinnar á botni Skerjafjarðar. Þeir hreinsuðu sand og leir frá flakinu og könnuðu skemmdir á því. Ekki hefur enn tekist að staðfesta hvaða Northrop-vél er um að ræða en köfunarbann er áfram í gildi þar til annað verður tilkynnt.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands