Flutt með þyrlu eftir fall í klettum
Fimmtudagur 5. september 2002.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá lögreglunni í Borgarnesi kl. 12:30 í dag um að stúlka hefði fallið í klettum í Hvalfirði og slasast en upplýsingar um staðsetningu voru misvísandi. Óskað var eftir að þyrla yrði í viðbragðsstöðu. Þyrluáhöfn var gert viðvart en beiðnin var afturkölluð af Neyðarlínunni stundarfjórðungi síðar.
Um eittleytið hafði Neyðarlínan samband að nýju og var nú aftur óskað eftir þyrlu í viðbragðsstöðu. Um kl. 13:14 barst síðan beiðni frá lögreglunni um að þyrlan sækti hina slösuðu austan við Botnsskála í Hvalfirði. TF-SIF fór í loftið kl. 13:38 og var komin á slysstað kl. 13:55.
Byrjað var á því að flytja sex björgunarsveitarmenn upp á fjall þar sem þrír unglingar voru í sjálfheldu en björgunarsveitarmennirnir sáu um að koma þeim á öruggan stað. Síðan var slasaða stúlkan hífð upp úr fjallshlíðinni en þá höfðu björgunarsveitarmenn og sjúkraflutningamenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins búið um hana á svokölluðu hryggspjaldi. Þyrlan lenti við Landspítala Háskólasjúkrahús kl. 14:51.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands