Samvarðaræfinging hefur gengið vel í dag
Föstudagur 28. júní 2002.
Þrátt fyrir að veður hafi sett strik í reikninginn hefur Samvarðaræfingin gengið vel í dag. Brugðist hefur verið við breyttum aðstæðum og talsvert hefur reynt á stjórnendur og skipuleggjendur æfingarinnar.
Í Vestmannaeyjum er unnið að rústabjörgun og slökkviliðsstörfum. Í Þorlákshöfn var sett á svið hópslys á níunda tímanum. Um var að ræða óvænta atburðarás í æfingunni sem m.a. reyndi á skipulag almannavarna í Ölfushreppi. Sett var á svið rútuslys norður af Þorlákshöfn. Viðbragðsaðilar í almannavarnaskipulagi Ölfushrepps komu að aðgerðum og fólk var flutt í móttökustöð og eistneskan og belgískan tjaldspítala sem komið hefur verið upp.
Dagmar Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands