Kaupsamningur um nýja eftirlitsflugvél fyrir Landhelgisgæsluna undirritaður

  • Kaupsamningur um nýja eftirlitsflugvél undirritaður

Mánudagur 7. maí 2007.

Landhelgisgæslan fær nýja eftirlitsflugvél í júlí 2009 ef allt gengur samkvæmt áætlun en samningur um kaup á flugvélinni var undirritaður í morgun.

Í fréttatilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir:

Skrifað var undir samning um kaup á nýrri eftirlitsflugvél fyrir Landhelgisgæslu Íslands í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, 7. maí 2007. Samið var við kanadíska fyrirtækið Field Aviation um kaup á vél af gerðinni Dash 8-Q300 sem er sérstaklega hönnuð fyrir löggæslu, leit og björgun og hentar vel við íslenskar veðurfarsaðstæður. Afhending flugvélarinnar er áætluð 26 mánuðum eftir undirritun samnings og má því ætla að ný flugvél verði tekin í gagnið í júlí 2009. Við athöfnina í dag var einnig ritað undir árangursstjórnunarsamning milli dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og Landhelgisgæslu Íslands.

Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra um að ganga til samninga við Field Aviation og veitti jafnframt þeim Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra umboð til að undirrita samninginn. Tilboð í nýja eftirlitsflugvél voru opnuð 16. nóvember sl. og hófu Landhelgisgæslan og Ríkiskaup skýringarviðræður við fyrirtækið Field Aviation um miðjan apríl. Flugvélin er smíðuð af fyrirtækinu Bombardier í Kanada en breytt í eftirlitsflugvél af Field Aviation. Heildarkostnaður nemur allt að 33 milljónum USD eða sem nemur rúmlega 2,1 milljörðum króna miðað við gengi USD 65 ISK. Jafnframt liggja fyrir áætlanir um varahlutakaup fyrir um 3 milljónir USD eða sem nemur um 200 m.kr.

Langdrægni vélarinnar er 2100 sjómílur og er hámarkshraði hennar 258 hnútar. Hún þarf stutta flugbraut og getur athafnað sig á flugvöllum í öllum landshlutum. Vélin er mjög vel búin tækjum til löggæslu, leitar og björgunar. Verður hægt að greina mengun, hafís, tegundir skipa, athafnir þeirra og auðkenni að nóttu sem degi. Eftirlitsbúnaður hennar byggir á 360° eftirlits- og leitarratsjá, hitamyndavél (FLIR), ljósnæmri myndavél, sjálfvirku auðkennikerfi skipa (AIS) og hliðarratsjá (SLAR) sem nýtist sérstaklega við mengunareftirlit. Vélin verður með stórum gluggum til að auka útsýni úr henni. Þá verður hægt að varpa úr vélinni björgunarbátum, blysum og mengunarsýnabaujum. Verður hún og vel búin fjarskiptatækjum, þ.m.t. TETRA neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi , og góðri aðstöðu fyrir björgunarmenn og sjúkraflutninga.

Sjá fréttatilkynninguna á heimasíðu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins:
http://domsmalaraduneyti.is/frettatilkynningar/nr/6206

Kaupsamningur um nýja eftirlitsflugvél undirritaður
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra, Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslu Íslands og Júlíus S. Ólafsson forstjóri Ríkiskaupa. Samningurinn var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu. Mynd: DS.

Flugvel_LHG_tolvugerd_mynd

Tölvugerð mynd af flugvélinni sem kaupsamningur var gerður um.