Öll loftför LHG kölluð út

Mikill viðbúnaður vegna alvarlegs rútuslyss við Kirkjubæjarklaustur

  • Thyrlur-Klaustur

Allar þyrlur Landhelgisgæslunnar og flugvélin TF-SIF voru kölluð út vegna alvarlegs rútuslys sem varð rétt vestan við Kirkjubæjarklaustur í gærmorgun. Þyrlurnar TF-LIF og TF-SYN héldu á vettvang strax á tólfta tímanum. TF-GNA fór svo í loftið upp úr hádeginu en kalla þurfti út áhöfn af frívakt. Auk áhafna voru læknar, sjúkraflutningamenn og mannskapur frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um borð. Fyrri þyrlurnar lentu með tólf slasaða við Landspítalann í Fossvogi á þriðja tímanum. TF-GNA flutti svo tíu manns með minni áverka á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi.

Thyrlur-KlausturTil viðbótar við þyrlurnar var flugvélin TF-SIF kölluð út vegna slyssins. Auk áhafnarinnar voru félagar í Flugbjörgunarsveitinni til taks. Engir stórir flugvellir eru nærri vettvangi slyssins en til stóð að búnaði yrði varpað úr vélinni og björgunarsveitarmenn stykkju frá borði í fallhlífum ef með þyrfti. Ekki kom til þess því beiðni um aðstoð flugvélarinnar var afturkölluð. 

Fá, ef nokkur, dæmi eru um að öll loftför Landhelgisgæslunnar séu kölluð út vegna sama málsins.