Sjúkraflug þyrlu og flugvélar Landhelgisgæslunnar á Reykjaneshrygg

  • LIF1_HIFR

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um klukkan þrjú í dag beiðni um að sækja veikan sjómann um borð í rússneskan togara sem staddur var um 210 sjómílur suður af Reykjanesi. Eftir að læknir í þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hafði rætt við skipstjóra togarans til að meta ástand mannsins var ákveðið að senda þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-LIF eftir manninum. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF var send á vettvang með þyrlunni til að tryggja öryggi og fjarskipti þyrlunnar. Þyrlan kom að togaranum kl. 19:07 um 220 sjómílur suður af Reykjanesi. Vel gekk að hífa manninn um borð í þyrluna og var hún lögð af stað til Reykjavíkur 20 mínútum síðar. Lenti þyrlan svo í Reykjavík upp úr kl. 21:00 í kvöld.