TF-GNÁ farin í sitt þriðja sjúkraflug á einum sólarhring

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rétt rúmlega tíu í kvöld beiðni um þyrlu vegna sjúklings á Patreksfirði sem koma þarf undir læknishendur í Reykjavík. Vegna veðurs var ekki fært fyrir sjúkraflugvél og því óskað eftir að Landhelgisgæslan annaðist um málið. 

TF-GNÁ, þyrla Landhelgisgæslunnar er nú farin í loftið og er áætlað að hún lendi á Patreksfirði um klukkan 23:45. Mun hún svo flytja sjúklinginn á sjúkrahús í Reykjavík. Þetta er þriðja sjúkraflug þyrlunnar síðastliðin sólarhring.