Þyrlan sótti sjúkling til Vestmannaeyja

Þoka og rigning í Eyjum gerðu hefðbundið sjúkraflug illmögulegt

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um hálfníuleytið í kvöld beiðni frá Neyðarlínunni um að þyrla færi til Vestmannaeyja til að sækja sjúkling og flytja hann til Reykjavíkur. Vegna þoku og rigningar var ekki unnt að senda sjúkraflugvél eftir honum

Þyrlan TF-GNA fór í loftið frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 21.17, hún lenti svo á flugvellinum í Vestmannaeyjum laust fyrir klukkan tíu. 

Skömmu síðar hélt þyrlan svo til baka og lenti hún á Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan ellefu. Þar beið sjúkrabíll sem flutti sjúklinginn á Landspítalann.