Varðskipið Týr leiddi skipalestina

Efnt við minningarathafnar um þá sem fórust í árásum á skipalestir í seinna stríði

Landhelgisgæslan tók þátt í einstökum viðburði á föstudag þegar efnt var til minningarathafnar í tilefni af því að um þessar mundir eru 75 ár liðin frá því að skipalest bandamanna í síðari heimsstyrjöldinni. PQ17, sigldi til Kólaskaga í Rússlandi þegar stríðið á austurvígstöðvunum stóð sem hæst. 


Mynd: Árni Sæberg

Sex herskip og kafbátur sem eru hér á landi í tengslum við kafbátaeftirlitsæfinguna Dynamic Mongoose söfnuðust saman á Faxaflóa og sigldu fylkingu inn Hvalförð. Varðskipið Týr fór fyrir skipalestinni. Um borð í Tý voru meðal annars Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, fjölmiðlafólk og fræðimenn og, síðast en ekki síst, sendiherrar nokkurra þeirra ríkja sem börðust í þessari mannskæðustu styrjöld veraldarsögunnar. 


Halldór B. Nellet, skipherra á Tý, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Mynd: Hilmar Snorrason.

Það var tilkomumikil sjón að sjá skipalestina sigla inn Hvalfjörðinn. TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, flaug meðfram skipunum og um tíma bættist við þyrla af hollensku freigátunni Evertsen.


Mynd: Hilmar Snorrason

Nærri Hvítanesi í Hvalfirði nam skipalestin staðar. Utanríkisráðherra flutti stutt ávarp á þilfari varðskipsins þar sem hann minntist þeirra sem létust í árásum þýskra herskipa og kafbáta á skipalestirnar, og þeirra sem lögðu líf sitt í hættu við að koma björgum til Rússlands í stríðinu. Að því loknu vörpuðu þeir Guðlaugur Þór og Ásgrímur L. Ásgrímsson, framkvæmastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar, blómsveig í hafið og hinna látnu minnst með einnar mínútu þögn. Nokkrir út áhöfn Týs og starfsliði Landhelgisgæslunnar stóðu heiðursvörð á meðan.  


Mynd: Hilmar Snorrason

„Það er viðeigandi að minnast sögu þessarar stærstu skipalestar bandamanna til Sovétríkjanna en hún lagði upp frá Hvalfirði í lok júní 1942. Á annað hundrað manns mætti örlögum sínum í Norður-Atlantshafi nokkrum dögum síðar en af 36 skipum komust aðeins 11 til hafnar,“ var haft eftir Guðlaugur Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.


Mynd: Árni Sæberg

Sem fyrr segir eru erlendu herskipin og kafbátarnir hér á landi í tengslum við kafbátaeftirlitsæfingu á vegum Atlantshafsbandalagsins. Æfingin, sem kallast Dynamic Mongoose 2017, fer fram suður af landinu og stendur hún til 6. júlí. Níu ríki Atlantshafsbandalagsins, Bandaríkin, Noregur, Frakkland, Þýskaland, Bretland, Danmörk, Kanada, Pólland og Holland. taka þátt í æfingunni og leggja til fimm kafbáta, níu freigátur og eitt rannsóknarskip, auk kafbátaleitarflugvéla og þyrla. Ríflega tvö þúsund manns mun taka þátt í æfingunni.  Árin 2012-2016 hafa árlegar æfingar af þessu tagi verið haldnar undan ströndum Noregs.


Mynd: Hilmar Snorrason

„Ísland er hluti af hinu breytta og flókna öryggisumhverfi sem við stöndum öll frammi fyrir. Þessi æfing er til marks um að sjónir bandamanna okkar beinast í auknum mæli að Norður-Atlantshafi og hún er því tímabær aðgerð til að styrkja eftirlit og greiningu á svæðinu,“ sagði utanríkisráðherra í áðurnefndri tilkynningu.

Ísland leggur til aðstöðu á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og Landhelgisgæsla Íslands tekur þátt í æfingunni, m.a. með stjórnstöð á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Varðskipið Týr, flugvél gæslunnar og þyrlur munu taka þátt í þeim hluta æfingarinnar sem tengjast hefðbundnum verkefnum stofnunarinnar. Stjórn æfingarinnar verður flutt frá flotastjórn Atlantshafsbandalagsins í Northwood í Bretlandi til öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli og verður það í fyrsta sinn sem þess konar æfingu er ekki stjórnað frá Northwood.

_G5A5853

Mynd: Árni Sæberg

Þessar glæsilegu myndir sem fylgja þessari frétt tóku þeir Árni Sæberg, ljósmyndari á Morgunblaðinu, og Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.