Varðskipið Týr til aðstoðar ástralskri skútu

  • TYR_Akureyri44

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst rúmlega tvö í dag beiðni um aðstoð frá ástralskri skútu sem stödd var tæpar 180 sjómílur vestur af Garðskaga. Hafði komið leki að skútunni og siglir hún nú fyrir eigin vélarafli til lands.

Varðskipið Týr hefur verið sent til móts við skútuna og mun það gefa skútunni eldsneyti þar sem skipstjóri skútunnar sér ekki fram á að ná til lands nema fá aukið eldsneyti. Þá mun Týr fylgja skútunni til hafnar. Er áætlað að varðskipið verði komið að skútunni um klukkan 22:00 í kvöld.