Viðbúnaður vegna skútu í vanda

Neyðarboð frá bandarískri skútu djúpt suðvestur af landinu

Um klukkan hálffimm í nótt bárust stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð úr neyðarsendi djúpt suðvestur af landinu, skammt utan við íslensku lögsögumörkin. Nánari eftirgrennslan leiddi í ljós sendirinn tilheyrði bandarískri skútu. Kveikt var á sendinum handvirkt og því full ástæða til að ætla að þarna væri alvara á ferð. 

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson var í þrjátíu sjómílna fjarlægð frá staðsetningu sendisins og óskaði því stjórnstöð eftir því að hann færi þegar í stað á vettvang. Einnig var varðskipinu Þór, sem er við eftirlit suður af landinu, stefnt þangað. Sökum þess að flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, er við landamæraeftirlit í Miðjarðarhafi á vegum Frontex var flugvél Isavia kölluð út, svo og Challenger-eftirlitsvél danska flughersins í Kangerlussuaq (Syðri-Straumfirði) á Grænlandi.

Flugvél Isavia fór í loftið upp úr klukkan níu og var hún komin á vettvang um klukkustund síðar. Skömmu síðar bárust fréttir af því að áhöfn hennar hefði fundið skútuna og allir um borð væru heilir á húfi. Mastrið hafði brotnað og rafmagnslaust var um borð. Frekari leitaraðgerðir voru þá afturkallaðar, nema að varðskipið Þór hélt áfram för sinni á vettvang.

Samkvæmt upplýsingum frá Árna Friðrikssyni eru skipverjar á skútunni komnir um borð í rannsóknaskipið. Þeir yfirgáfu skútuna í gúmmíbjörgunarbát. Óljóst er hvert framhaldið verður með skútuna, það fer eftir ástandi hennar.

Samkvæmt upplýsingum frá bandarísku strandgæslunni lét skútan úr höfn frá Virginía-ríki í Bandaríkjunum í byrjun þessa mánaðar og var förinni heitið til Íslands. Þrír voru um borð í skútunni.