Hlutverk
Við erum til taks
Hlutverk
Verkefni Landhelgisgæslunnar eru tilgreind í 4. gr. laga nr. 52/2006, um Landhelgisgæslu Íslands.
- Öryggisgæsla á hafinu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands, samninga við önnur ríki og ákvæði laga.
- Löggæsla á hafinu, þ.m.t. fiskveiðieftirlit og aðstoð við löggæslu á landi í samvinnu við ríkislögreglustjóra og lögreglustjóra.
- Leitar- og björgunarþjónusta við sjófarendur, skip og önnur farartæki á sjó.
- Leitar- og björgunarþjónusta við loftför.
- Leitar- og björgunarþjónusta á landi.
- Aðkallandi sjúkraflutningar í samvinnu við aðra björgunaraðila.
- Aðstoð við almannavarnir.
- Aðstoð, þegar eðlilegar samgöngur bregðast, svo sem vegna hafíss, snjóalaga, ofviðra eða náttúruhamfara.
- Eftirlit á hafinu samkvæmt lögum um siglingavernd og öðrum sambærilegum lögum.
- Að tilkynna um, fjarlægja eða gera skaðlaus reköld, tundurdufl, sprengjur eða aðra hluti sem sjófarendum getur stafað hætta af auk sprengjueyðingar á landi.
- Sjómælingar, sjókortagerð, útgáfa tilkynninga til sjófarenda, sjávarfallataflna og leiðsögubóka auk annarra rita sem tengjast siglingum.
- Móttaka tilkynninga frá skipum samkvæmt lögum um útlendinga og eftirlit með lögsögumörkum á hafinu.
Ráðherra setur nánari ákvæði um framkvæmd einstakra verkefna í reglugerð.
Í 5. gr. eru talin upp verkefni sem Landhelgisgæslunni er heimilt að gera þjónustusamninga um, þar er m.a. um að ræða:
- Fiskveiðieftirlit.
- Fjareftirlit með farartækjum á sjó.
- Almennt sjúkraflug og aðstoð við læknisþjónustu.
- Mengunarvarnir og mengunareftirlit á hafinu.
- Sprengjueyðingu og hreinsun skotæfingasvæða.
- Eftirlit með skipum á hafinu og aðstoð við framkvæmd vitamála.
- Rekstur vaktstöðvar siglinga.
- Móttöku og miðlun tilkynninga frá skipum.
- Tolleftirlit.
- Rannsóknir og vísindastörf á hafinu eftir því sem aðstæður leyfa.
Landhelgisgæslu Íslands er heimilt í samráði við ráðherra að taka að sér ólögbundin verkefni með samningum þegar sérstaklega stendur á.

