Leit og björgun

Leit og björgun

Landhelgisgæslan er ábyrg fyrir leit og björgun vegna sjóslysa á hafinu umhverfis Ísland. Í því sambandi starfrækir Landhelgisgæslan sjóbjörgunarstjórnstöð "Maritime Rescue Co-ordination Centre - MRCC" í aðalstöðvum sínum í Reykjavík.

Stjórnstöðin er sambyggð björgunarstjórnstöð og fjarskiptastöð fyrir gæslueiningarnar. Stjórnstöðin er búin fjölbreyttum búnaði til fjarskipta, þ.á.m. gervihnattafjarskiptatækjum. Stöðin er þannig útbúin að hún getur starfað sjálfstætt þótt öll önnur innlend fjarskipta- og eða orkuvirki verði óvirk. Tölvukerfi eru notuð til fjarskipta, fjareftirlits og til útreikninga á leitarsvæðum.

Hér má sjá kort sem sýnir áætlaðan flugtíma þyrlu LHG en tímasetningar miðast við að komist sé stysta leið á milli staða.

Myndir_vardskipstur_001

Mynd © Árni Sæberg.

Samstarfssamingur um starfrækslu leitar- og björgunarmiðstöðvar

Flugmálastjórn Íslands, Landhelgisgæsla Íslands, Ríkislögreglustjórinn, Siglingastofnun Íslands, Neyðarlínan h.f. og Slysavarnafélagið Landsbjörg undirrituð samstarfssamning um starfrækslu leitar- og björgunarmiðstöðvar 7. apríl 2003.

EEZ_Ice_SRR_2008

Leitar- og björgunarsvæði Íslands er innan rauðu línunnar.

 




þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.