Loftför LHG
Flugfloti
Flugdeild LHG starfrækir tvær þyrlur og eina eftirlitsflugvél. Flugvél LHG er af gerðinni Dash - 8 Q300 og er hún aðallega notuð til löggæslu á djúpslóð og grunnslóð sem og til eftirlits á alþjóðlegum hafsvæðum við Ísland. Flugvélin er sérhönnuð til eftirlits-, leitar-, björgunar- og sjúkraflugs á Norður Atlantshafi. Við framleiðslu vélarinnar var áhersla lögð á draga úr hávaða og titringi jafnt innan sem utan flugvélarinnar. Vélar af tegundinni Dash 8 Q300 eru þekktar fyrir að geta athafnað sig á mjög stuttum flugbrautum, ennfremur þola þær talsverðan hliðarvind eða um 36 hnúta. Flugdrægi vélarinnar er um 2100 NM auk 45 mínútna varaeldsneytis.
Flugvélin var afhent Landhelgisgæslunni í júlí 2009 en með flugvélinni margfaldaðist eftirlitsgeta Landhelgisgæslu Íslands bæði með tilliti til mengunar, fiskveiða og hafíss. Með vélinni hafa möguleikar til leitar- og björgunar aukist gríðarlega, sérstaklega á hafi úti en einnig á landi. Um borð eru tvær vinnustöðvar sem útbúnar eru fullkomnu MMS (Mission Management System) sem m.a. aðstoðar við framkvæmd eftirlits, úrvinnslu og samhæfingar þeirra gagna sem safnað er, þ.e. í almennu fiskveiði-, ís- og mengunareftirliti. Um borð er hugbúnaður til að greina myndir og gagnagrunnur með skipum sem býður upp á þann möguleika að mæla lengdir skipa og flatarmál mengunar úr nokkurri fjarlægð. Hægt er að færa allar upplýsingar rafrænt á milli skjáa og vinnustöðva. Allar aðgerðir og upplýsingar úr eftirlitsbúnaði eru teknar upp og hægt er að framkvæma myndvinnslu samhliða upptöku.
Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru notaðar jafnt til öryggis- og löggæslu sem og í leitar og björgunarflug. Farið er með reglubundnum hætti í eftirlitsflug á þyrlum en auk þess er æfingaflug nýtt til löggæsluverkefna. Löggæsluferðir þyrlnanna felast í almennu eftirliti með skipaumferð og fiskveiðum á grunnslóð.
Þyrla í eigu LHG er af gerðinni Aerospatiale Super Puma (fjallaljón), TF-LIF. Einnig leigir Landhelgisgæslan eina þyrlu, TF-GNA sem er sömu tegundar og Líf.
Tæknideild Flugdeildar Landhelgisgæslunnar er staðsett á Reykjavíkurflugvelli, nánar tiltekið í skýli nr. 2. sem stendur við Nauthólsvík. Flugskýlið er samtals um 1400 fermetrar og hafa flugvirkjar alla sína aðstöðu þar. Vakthafandi flugmenn og stýrimenn hafa jafnframt aðstöðu þar í viðbyggingu skýlisins. Fjórir flugvirkjar ganga reglubundnar bakvaktir og eru þar af leiðandi reiðubúnir útkalli 24 tíma á sólarhring því ávallt er þörf á flugvirkjum til að halda flughæfi flugvéla eða þyrla í gildi. Flugvirki gegnir einnig spilmannsstarfi á bakvakt sinni. Nöfn loftfara Landhelgisgæslunnar
Nöfn þyrlna og flugvélar Landhelgisgæslunnar eru úr goðafræði. Áhugamenn um íslenskt mál, bæði leikmenn og sérfræðingar, hafa reglulega haft samband við Landhelgisgæsluna vegna beyginga á nöfnum loftfara Landhelgisgæslunnar og einnig vegna þess að einkennisstafir eru notaðir í umfjöllun um þau. Landhelgisgæslan setti í kjölfarið fram eftirfarandi leiðbeiningar og upplýsingar um nöfn loftfaranna:
Sif
Flugvél Landhelgisgæslunnar, sem hefur einkennisstafina TF-SIF, heitir eftir gyðjunni Sif sem er kona þrumuguðsins Þórs og býr með honum í höll hans, Bilskirni, í ríkinu Þrúðvöngum. Sif er gyðja kornakra í norrænni goðafræði og slegið glamapandi hár hennar gáraðist um herðar henni eins og fullþroska hveiti á akri. Á eftir Freyju var Sif fegurst allra goðanna.
Beyging:
Sif um Sif frá Sif til Sifjar.
Líf
Þyrla Landhelgisgæslunnar, sem hefur einkennisstafina TF-LIF, heitir eftir Líf, goðsögulegri kvenveru sem lifði af Ragnarök.
Einnig er hún sögð vera sú sem hjúkrar.
Beyging:
Líf um Líf frá Líf til Lífar.
Gná
Hin stærri þyrla Landhelgisgæslunnar, sem hefur einkennisstafina TF-GNA, heitir eftir gyðjunni Gná, en hana sendir Frigg í ýmsa heima að sinna erindum sínum. Gná á hestinn Hófvarpni er rennur bæði loft og lög.
Beyging:
Gná um Gná frá Gná til Gnár
Syn
Flugvél Landhelgisgæslunnar af gerðinni Fokker F27, sem komin er til ára sinna hefur einkennisstafina TF-SYN, heitir eftir gyðjunni Syn sem varnar óviðkomandi inngöngu í hallir ása og mælir á þingum gegn þeim sem henni þykir sanna mál sitt með ýkjum og lygum. Sums staðar er hún kölluð dyravörður Fensala, bústaðar Friggjar.
Beyging:
Syn um Syn frá Syn til Synjar.
