Myndir frá fyrsta "acceptance" flugi TF-Sifjar í Kanada
Í vikunni fór TF-SIF ný flugvél Landhelgisgæslunnar í sitt fyrsta „acceptance" flug í Kanada. Meðfylgjandi myndir sýna flugvélina í aðflugi inn á Pearson flugvöll í Toronto. Flugið sem tók um fimm og hálfan tíma gekk mjög vel og framar vonum. Flugprófanir voru gerðar á ýmsum þáttum vélarinnar auk „mission" búnaðar. Þetta var fyrsta „acceptance" flugið af þremur sem farið verður í fyrir formlega afhendingu vélarinnar. Næsta flug er áætlað á morgun föstudag og verður þá meðal annars prófaður búnaður til að varpa björgunarbátum úr vélinni.
