Nýtt varðskip Þór
Smíði á nýju fjölnota varðskipi stendur yfir
Smíði á nýju fjölnota varðskipi Landhelgisgæslu Íslands stendur yfir hjá ASMAR skipasmíðastöð sjóhersins í Talcahuano í Chile. Smíði skipsins hófst þann 16. október 2007.
Skipið var sjósett við hátíðlega athöfn þann 29. apríl 2009. Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar flutti hátíðarræðu við athöfnina en hann var viðstaddur hana ásamt Þórunni J. Hafstein skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Við athöfnina fluttu einnig erindi Cristian Gantes aðmíráll hjá Chileanska flotanum og Andres Fonzo aðmíráll og framkvæmdastjóri skipasmíðastöðvarinnar.
Skipið verður tilbúið til afhendingar fyrrihluta árs 2010.
Myndir af framgangi skipasmíðanna og þjálfunarmálum má nálgast hér.
Kynning á skipinu og tæknilegar upplýsingar eru hér.

