Rekstrarsvið
Rekstrarsvið
Rekstrarsvið hefur það hlutverk að veita innri viðskiptavinum þjónustu á sviði fjármála, stjórnendaupplýsinga og tæknimála. Jafnframt annast rekstrarsvið samskipti við fjármálaráðuneytið, fjármálastofnanir og birgja og sér um að reka flota skipa, loftfara og annarra tækja og búnaðar Landhelgisgæslunnar. Meginmarkmið sviðsins eru:
- Að veita öðrum sviðum hámarksþjónustu með sem hagkvæmustum hætti.
- Að lágmarka fjármagns- og rekstrarkostnað.
- Að tryggja markvissa upplýsingagjöf til stjórnenda varðandi rekstur og afkomu.
- Að viðhalda tæknistigi sem styður starfsmenn í starfi og lágmarkar truflanir vegna bilana í tækjum og búnaði.
Rekstrarsviði er stjórnað af framkvæmdastjóra rekstrarsviðs sem heyrir beint undir forstjóra. Meðal helstu verkefna eru fjármál, upplýsingamál, tæknimál, rekstur skipa, loftfara og annarra tækja og búnaðar LHG og flugöryggismál.

Mynd © Árni Sæberg.

