Önnur kort
Veiðihólf
Kortið er gert samkvæmt lögunum 26. maí 1997 með ásamt breytingum nr. 127, 22. desember 1997.
Skipum er skipt í þrjá flokka í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands:
1. flokkur: Fiskiskip 42 metrar og lengri. Enn fremur öll fiskiskip með aflvísa 2.500 eða hærri.
2. flokkur: Fiskiskip lengri en 29 metrar en styttri en 42 metrar með aflvísa lægri en 2.500. Enn fremur fiskiskip styttri en 29 metrar en með aflvísa 1.600 og hærri.
Í þennan flokk falla einnig fiskiskip 39 metrar og styttri sem togveiðiheimildir höfðu eftir þeirri viðmiðun skv. 3. gr. laga nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, enda verði ekki um aukningu á aflvísum þeirra að ræða eftir 1. júní 1997.
3. flokkur: Fiskiskip styttri en 29 metrar, enda séu þau með lægri aflvísa en 1.600. Enn fremur fiskiskip 26 metrar og styttri sem togveiðiheimildir höfðu eftir þeirri viðmiðun skv. 3. gr. laga nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, enda verði ekki um aukningu á aflvísum þeirra að ræða eftir 1. júní 1997.
Nánari upplýsingar er að finna í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.
http://www.althingi.is/lagas/131b/1997079.html

