Við erum til taks

Með öflugri öryggis- og löggæslu, eftirliti, leit og björgun ber Landhelgisgæslunni að stuðla að öryggi sjófarenda, fólksins í landinu og verndun auðlinda með sem bestum og hagkvæmustum hætti.

Kynningarbæklingur


Ábendingar

Móttaka á þyrlu

Mikilvægar upplýsingar um móttöku þyrlu á sjó og landi

Samskipti við skip og loftför

Mikilvægar upplýsingar um kallrásir, merkjaflögg, ljós- eða hljóðmerki

Sjávarföll

Upplýsingar um tíma og hæð flóðs og fjöru í Reykjavík næstu sjö daga


Fréttayfirlit

Eftir aðeins tíu daga hætt að hlusta eftir neyðarsendingum á 121,5 MHz

22.1.2009

Fimmtudagur 22. janúar 2009

Eftir aðeins tíu daga hættir Cospas-Sarsat gervihnattakerfið hlustun eftir neyðarsendingum á tíðninni 121,5 MHz sem koma frá gömlum neyðarsendum skipa, báta og smærri flugvéla. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar minnir á að mjög mikilvægt er að yfirfara og skipta út gömlum neyðarsendum.

Neyðarsendar á 406 MHz með innbyggðum GPS verða til þess að nákvæm staðsetning fæst við ræsingu sendis. Verður því leitarsvæðið minna og líkur á að sá sem leitað er að, verði mun fyrr komið til bjargar. Staðsetningar GPS tækja eru eins og flestir vita mjög nákvæmar eða 60-100 metrar í radíus. Biðtími er innan sex mínútna frá ræsingu nýju sendanna þar til Stjórnstöð LHG fær upplýsingar og getur brugðist við þeim.

Samkvæmt upplýsingum frá Póst og Fjarskiptastofnun er talið að um þriðjungur íslenska flotans sé kominn með nýja neyðarsenda sem senda út á 406 MHz. Miðað við þessar upplýsingar má ætla að um 800 bátar verði án neyðarsenda við þessi tímamót. Áríðandi er að sendarnir verði settir sem fyrst í alla báta, ekki síst björgunarbáta. Tímasparnaður vegna leitar getur verið umtalsverður, að ekki sé talað um þá sem þurfa að hafast við í björgunarbátum um lengri eða skemmri tíma. Allt sem flýtir fyrir leit er allra hagur.

Nánar í frétt LHG frá 10.12.2008

22.01.2009/HBS