Skip og bátar

Skip og bátar

Varðskip Landhelgisgæslunnar sinna mikilvægu hlutverki við öryggis- og löggæslu á Íslandsmiðum. Þá eru þau þýðingarmikil björgunar- og mengunarvarnatæki.



Óðinn

Aðgerðabáturinn Óðinn er hannaður smíðaður af bátasmiðjunni Rafnari

Þessi nýstárlegi bátur nýtist vel við löggæslu og eftirlit á grunnslóð en verkefnin sem hann getur sinnt eru nánast óteljandi. Óðinn er í umsjá sprengjueyðingar- og séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar. 

Óðinn er tíu metra langur strandgæslubátur sem smíðaður er af fyrirtækinu Rafnar ehf. Hann var afhentur Landhelgisgæslunni sumarið 2015. 

Um er að ræða byltingarkennda bátasmíði sem byggir á nýrri hönnun á þessari tegund báta. Báturinn hefur mikla þýðingu fyrir Landhelgisgæsluna og eykur möguleika hennar á að sinna fjölbreyttum verkefnum sínum.

Þróun bátsins hófst árinu 2011 í samvinnu við Landhelgisgæsluna en báturinn er sérsmíðaður og sérstaklega hannaður eftir þörfum Landhelgisgæslunnar. Frumútgáfur bátsins voru í prófunum í þrjú ár við margvíslegar aðstæður og hefur báturinn reynst afar vel.

IMG_5423_1517940908366Með tilkomu Óðins í flota Landhelgisgæslunnar hafa möguleikar hennar aukist á að sinna fjölmörgum verkefnum og staðbundnu eftirliti á hagkvæmari og fljótlegri hátt en á stærri skipum. Báturinn eykur meðal annars stórlega möguleika Landhelgisgæslunnar til öryggis- og löggæslu á grunnslóð. Þá eru kostir bátsins miklir þegar kemur að æfingum með þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar sem og varðskipum og öðrum björgunareiningum í landinu. 


Óðinn

Báturinn nýtist einnig sem aðgerðabátur sprengju- og séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar sem og í margvísleg löggæslu- og eftirlitsverkefni og önnur sérverkefni. Bátur af þessari stærðargráðu er hagkvæm eining bæði til eftirlits og þjálfunar og gerir Landhelgisgæslunni kleift að skipuleggja betur nýtingu báta og varðskipa og bregðast við aðstoðarbeiðnum á grunnslóð með skjótari hætti.