Fréttayfirlit: 2015 (Síða 3)
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaða göngukonu við Hrafntinnusker
Rétt fyrir fjögur í dag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um þyrlu vegna erlendrar göngukonu sem hafði fótbrotnað við Hrafntinnusker er hún datt í gegnum snjó.
Innanríkisráðherra heimsækir Landhelgisgæsluna og árangursstjórnunarsamningur undirritaður við sama tilefni
Ólöf Nordal innanríkisráðherra heimsótti Landhelgisgæsluna í dag ásamt samstarfsfólki úr innanríkisráðuneytinu. Samhliða heimsókninni undirrituðu ráðherra og Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar árangursstjórnunarsamning milli ráðuneytisins og Landhelgisgæslunnar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar bjargar ferðamanni úr sjálfheldu á Eyjafjallajökli
Erlent rannsóknarskip fært til hafnar
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar æfir með heimsmeistaranum í Crossfit, Katrínu Tönju
Þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar getur við störf sín lent í margvíslegum og erfiðum aðstæðum og því eru æfingar einn mikilvægasti þáttur í starfsemi hennar. Ein slík æfing fór fram í dag og þá slóst í hóp með þeim þyrluköppum ein fremsta afrekskona landsins og heimsmeistari í Crossfit, Katrín Tanja Davíðsdóttir ásamt þjálfurum sínum og fylgdarliði.
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyða fallbyssukúlu sem skip fékk í veiðarfærin
Um klukkan 13:30 í dag hafði Skinney SF-20 samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar en skipið hafði þá fengið torkennilegan hlut upp með veiðarfærum sem reyndist vera fallbyssukúla.
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann drenginn sem týndur hafði verið í hlíðum Heklu síðan fyrr um daginn
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir veika konu vestan við Skeiðarárjökul
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 10:22 í morgun beiðni um þyrlu vegna veikrar konu sem var í gönguhóp vestan við Skeiðarárjökul.
Loftrýmisgæsla að hefjast að nýju
Danski flugherinn tekur við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland, mánudaginn 1. september næstkomandi. Alls munu um 60 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi.
TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar sækir ungan pilt sem féll í gil
Talsverður erill hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar
Talsvert hefur verið um útköll á þyrlur Landhelgisgæslunnar það sem af er vikunni en í gær voru tvö útköll og eitt nú um hádegi.
Varðskipið Týr heldur til björgunar- og eftirlitsstarfa fyrir Frontex
Varðskipið Týr siglir nú áleiðis til Spánar þar sem skipið mun starfa við leit, björgun og eftirlit fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Verður skipið við störf fyrir Frontex við Spán og Ítalíu út árið. Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar og aðrir samstarfsfélagar hjá Landhelgisgæslunni sem og fjölskylda og vinir áhafnarinnar kvöddu áhöfnina áður en haldið var af stað.
Varðskipið Þór dregur grænlenskt fiskiskip til hafnar
Varðskipið Þór dregur nú grænlenska fiskiskipið QAVAK GR-21 til hafnar á Þórshöfn. Skipið var að veiða síld í flotvörpu í grænlenskri lögsögu er það fékk veiðarfæri í skrúfuna og var þá óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar.
Lokun svæðis innan Reykjavíkurhafnar á meðan flugeldasýning menningarnætur stendur yfir
Meðan flugeldasýning menningarnætur stendur yfir, kl. 22:50 til 23:20 nk. laugardag, mun afmarkað svæði innan Reykjavíkurhafnar, umhverfis Faxagarð, verða lokað fyrir allri báta- og skipaumferð.
Eldur um borð í strandveiðibát
Vegna flugslyss í Barkárdal - Landhelgisgæslan þakkar þeim sem aðstoðuðu við leitina
Umfangsmikil leit fór fram í gær vegna eins hreyfils sjóflugvélar af gerðinni Beaver með kallmerkið N610LC. Lét Landhelgisgæslan, sem fer með yfirstjórn vegna leitar að loftförum, ræsa út samhæfingarstöð í björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og kalla út björgunareiningar. Kl. 20:29 fann TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar sjóflugvélina í fjallshlíð innarlega í Barkárdal. Rannsóknarnefnd flugslysa vinnur nú að rannsókn slyssins. Landhelgisgæslan vill koma á framfæri þakklæti til lögreglu, björgunarsveita og annarra er aðstoðuðu við leitina.