Fréttayfirlit: 2019

Áramótaannáll LHG 2019

Thor

Árið 2019 er nánast á enda og nýtt ár handan við hornið. Árið sem nú er að líða hefur verið býsna tíðindaríkt í starfi Landhelgisgæslunnar og verkefnin sem starfsfólkið hefur fengist við verið bæði fjölbreytt og sum hver afar krefjandi.

Þór kominn til Reykjavíkur

IMGL2954

Varðskipið Þór kom til Reykjavíkur í morgun eftir annasama daga á Norðurlandi. Áhöfnin hefur staðið í ströngu að undanförnu og úthald varðskipsins var nokkuð lengra en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.

Landhelgisgæslan tekur þátt í Grænum skrefum

LOGO300pt

Landhelgisgæsla Íslands skráði sig á dögunum í verkefnið Grænu skrefin. Verkefnið snýst um að efla vistvænan rekstur ríkisins með kerfisbundnum hætti. Alls taka 80 ríkisstofnanir þátt. 

Ríkisstjórnin styrkir framkvæmdir á varðskipinu Óðni

Odinn_1576658402848

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að veita fjórar milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til framkvæmda á varðskipinu Óðni til að undirbúa siglingu þess sjómannadagshelgina 6. og 7. júní í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því að skipið kom nýtt til landsins árið 1960.

Vegna leitar í Núpá

TF-LIF

Laust eftir hádegi í dag fann áhöfn TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, piltinn sem saknað hefur verið frá því á miðvikudagskvöld, eftir að hann féll í Núpá í Sölvadal, látinn.

Varðskipið Þór framleiðir rafmagn fyrir Dalvík

IMG_0688

Varðskipið Þór sér nú Dalvík fyrir um 70% af raforkuþörf. Upp úr miðnætti tókst tæknimönnum að tengja skipið við Dalvík og nýta það sem rafstöð fyrir bæinn. Þetta er í fyrsta sinn sem varðskipið Þór er nýtt sem hreyfanleg aflstöð.

TF-LIF leitar úr lofti í Sölvadal

TF-LIF-leitar

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var nú á tólfta tímanum send til leitar í Sölvadal. Þyrlan tók á loft frá Akureyrarflugvelli klukkan 11:16. Fjögurra manna áhöfn er um borð sem og björgunarsveitarmaður á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

Landhelgisgæslan óskaði eftir aðstoð danska flughersins

IMG_0675

Landhelgisgæslan óskaði í dag eftir aðstoð frá danska flughernum vegna aðstæðna á Norðurlandi sem og leitar sem nú stendur yfir í Sölvadal. Danir tóku vel í hjálparbeiðni Landhelgisgæslunnar og var danskri C130 Hercules flugvél flughersins sem var skammt undan ströndum Íslands snúið við og lenti vélin á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir hádegi. 

Þór nýttur sem aflstöð fyrir Dalvík

Image00001

Varðskipið Þór er í höfn á Dalvík þar sem til stendur að nýta skipið sem rafstöð fyrir bæinn. Tæknimenn eru að störfum í varðskipinu sem vinna að því að koma rafmagninu í land. Þá var rafstrengur sendur með Hercules flugvél danska flughersins síðdegis. Þetta verður í fyrsta sinn sem varðskipið Þór er nýtt sem hreyfanleg aflstöð. Þór getur flutt 2MW af rafmagni í land en það er nóg til þess að halda meðalstóru sveitarfélagi gangandi í neyðartilvikum.


Þyrlur Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna leitar í Sölvadal

TF-EIR-fer-fra-Reykjavik-med-bjorgunarsveitarmenn-i-nott

TF-LIF og TF-EIR, þyrlur Landhelgisgæslunnar, fluttu í nótt fjóra kafara, lögreglumann og tíu sérhæfða björgunarsveitarmenn norður í Sölvadal þar leit fer fram í Núpá

Þór á leið með rafstöð til Siglufjarðar

Thor-a-siglingu

Varðskipið Þór er nú statt norður af Straumnesi og er á leið til Siglufjarðar með rafstöð. Óskað var eftir aðstoð varðskipsins í morgun og hélt skipið til Ísafjarðar þar sem rafstöðin var sótt.

Varðskipið Þór til taks í Ísafjarðardjúpi

Thor

Varðskipið Þór er til taks í Ísafjarðardjúpi ef á þarf að halda en skipið hefur sinnt eftirliti á hafsvæðinu umhverfis landið undanfarna daga. Þá eru þyrlur Landhelgisgæslunnar sömuleiðis til taks í Reykjavík. 

Landhelgisgæslan hvetur eigendur skipa og báta að huga að þeim vegna veðurútlits

Vedurkort

Landhelgisgæslan bendir á að öldu- og vindáhlaðandi, samfara þeim lága loftþrýstingi sem spáð er, geti bætt talsvert við sjávarhæð í höfnum umfram það sem útreiknaðar sjávarfallatöflur gefa til kynna, sérstaklega þar sem vindur stendur á land. Landhelgisgæslan hvetur því eigendur og umsjónarmenn skipa og báta í höfnum til að huga að þeim við þessar aðstæður.

Æft um borð í Herjólfi

Reykkofun-Herjolfi

Varðskipið Þór er nú við eftirlit og önnur störf á miðunum í kringum landið. Þegar varðskipið var í Vestmannaeyjum á dögunum nýttu skipstjórnarmenn og reykkafarar Þórs tækifærið og kynntu sér aðstæður um borð í nýja Herjólfi

Landhelgisgæslan bar sigurorð af breska flughernum

614-OFFICIAL-20191206-055-198

Landhelgisgæslan bar sigurorð af konunglega breska flughernum í knattspyrnuleik um helgina. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 3-3. Ásgeir Guðjónsson, sprengjusérfræðingur jafnaði metin með síðustu spyrnu venjulegs leiktíma og markvörðurinn Stefán Logi Magnússon tryggði sigurinn í vítaspyrnukeppni. 75 ár voru frá síðasta leik liðanna en þá fór breski flugherinn með sigur af hólmi.

TF-LIF sótti veikan skipverja

TF-LIF-LIF

Áhöfnin á TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti síðdegis í gær veikan skipverja sem staddur var á fiskiskipi um 70 sjómílur austur af Djúpavogi. 

Síða 1 af 7