Flutningaskipið Axel komið af strandstað, gengur fyrir eigin vélarafli

  • Flutnskip_Axel_strand_Hornafj_27112007_2

Þriðjudagur 27.nóvember 2007 - uppfært kl. 10: 45

Flutningaskipið Axel, sem strandaði við Hornafjarðarós í morgun er komið af strandstað. Enginn olíuleki virðist vera frá skipinu og dælur hafa við að dæla þeim sjó sem berst í skipið.
Axel gengur undir eigin vélarafli áleiðist til Berufjarðar þar sem áætlað er að skipið fari til hafnar. Björgunarskipið Ingibjörg fylgir skipinu áleiðis þar til varðskip Landhelgisgæslunnar mætir skipunum og mun varðskipið fylgja Axel til hafnar.

Flutningaskipið er með fullfermi af frosnum fiski og um 170 tonn af olíu voru talin vera um borð í skipinu. Skipstjóri Axels er íslenskur en aðrir í áhöfn eru frá A-Evrópuþjóðum.

Flutnskip_Axel_strand_Hornafj_27112007_2
Flutningaskipið Axel við Hornafjarðarós
Mynd: Hornafjörður.is


SRS 27.11.2007 kl. 10:45