Landhelgisgæsluáætlun 2008 - 2010 kynnt
Þriðjudagur 6.maí 2008
Í dag var Landhelgisgæsluáætlun fyrir árin 2008 – 2010 kynnt á fundi sem haldinn var í flugskýli Landhelgisgæslunnar við Reykjavíkurflugvöll. Áætlunin fjallar ítarlega um markmið og áherslur í starfsemi Landhelgisgæslunnar næstu þrjú árin. Farið var yfir áætlunina, breytingar á starfsumhverfi Landhelgisgæslunnar og breyttar áherslur í kjölfar þeirra.
Tækjakostur Landhelgisgæslunnar mun aukast til muna á tímabilinu, þar sem von er á nýju fjölnota varðskipi í september 2009 og nýrri sérútbúinni eftirlitsflugvél sumarið 2009. Ljóst er að Landhelgisgæslan verður mun betur í stakk búin til að sinna hlutverki sínu, hvort sem horft er til gæslu landhelginnar, leitar og björgunar, mengunarvarna eða viðbrögðum við hryðjuverkaógn. Þá tekur áætlunin á því hvernig nýta megi fjareftirlitskerfi enn frekar til að afla vitneskju um skipaumferð innan efnahagslögsögunnar og þannig gera eftirlitið markvissara.
Með Landhelgisgæsluáætlun fyrir árin 2008 – 2010 er lagður grunnur að öflugri starfsemi Landhelgisgæslu Íslands næstu ár í samræmi við nýjar kröfur. Samhliða því sem tækjakostur Landhelgisgæslunnar tekur stakkaskiptum er nauðsynlegt að móta stefnu um skynsamlega og markvissa nýtingu þessara tækja í höndum vel þjálfaðra starfsmanna og tryggja nægjanlegt fjármagn með samþykki fjárveitingavaldsins.
Landhelgisgæsluáætlun 2008 - 2010 er hægt að nálgast hér (á .pdf formi)
Fundinn sátu einnig fulltrúar sænsku strandgæslunnar sem hér eru í boði Landhelgisgæslunnar. Þeir eru hingað komnir með nýrri Dash-8 Q300 eftirlitsflugvél sænsku strandgæslunnar sem er af sömu gerð og búin samskonar tækjabúnaði og væntanleg eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar. Var sænska vélin til sýnis á fundinum.
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar býður gesti velkomna.
Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, kynnir áætlunina.
Auðunn Kristinsson fer yfir efni áætlunarinnar.
Sænskir gestir og íslenskir kollegar.
Kynning á áætluninni
Geirþrúður Alfreðsdóttir flugrekstrarstjóri ræðir flugvélamál við gestina.
Dash-8 Q300 flugvél sænsku strandgæslunnar.
Dash-8 Q300 vélin lent á Reykjavíkurflugvelli.
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra býður áhöfn vélarinnar velkomna.
Myndir: Sigríður Ragna Sverrisdóttir
06.05.2008 SRS