Æfingin Northern Challange 2008 gekk vel

3. október 2008

Nýverið fór fram á Íslandi æfingin Northern Challenge 2008 sem er alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga sem haldin er á vegum Dómsmálaráðuneytisins, Landhelgisgæslunnar (LHG) og Varnarmálastofnunar. Æfingin var haldin með styrk frá NATO en sprengjusveit LHG annaðist að mestu leyti undirbúning og skipulag æfingarinnar en fékk til þess aðstoð frá öðrum þjóðum.

Northern Challenge 2008 stóð yfir í tvær vikur og fór að mestu leyti fram á gamla varnarliðssvæðinu við Keflavíkurflugvöll og í höfninni við Helguvík. Æfingin hefur áunnið sér hlutverk innan NATO Í svo kölluðu POW ( Programme Of Work Against Terrorism) sem notað er í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þetta var í sjöunda skipti sem æfingin er haldin hér á landi og fer aðsókn hennar sífellt vaxandi. Þær þjóðir sem tekið hafa þátt frá upphafi eru Bandaríkin, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Frakkland Holland, Noregur, Pólland, Svíþjóð, Úkraína og Þýskaland.

Tilgangur æfingarinnar er að gera eftirlíkingar af hryðjuverkasprengjum sem fundist hafa um heim allan síðastliðin ár, auk þess sem reynt er að hafa aðstæður eins raunverulegar og sambærilegar og hægt er. Liðin fá síðan verkefnin til úrlausnar í gegnum stjórnstöð sem jafnframt er partur af æfingunni, þ.e. þjálfun í notkun talstöðva á sprengjusvæðum. Frá hverri þjóð koma tveir reynslumiklir sprengjusérfræðingar sem skiptast á að fylgjast með liðunum við misjöfn verkefni. Að þeim loknum fá liðin  einkunn og fá leiðbeiningar um hvað betur mætti fara hverju sinni. Æfingin nýtist til að halda sprengjusérfræðingum í góðri þjálfun og þeir verði betur í stakk búnir til að takast á við  verkefni í heimalöndum sínum og á erlendri grundu.

 Í þetta skipti voru Noregur, Frakkland, Þýskaland, Bandaríkin þátttakendur en jafnframt sprengjusveit LHG, með því að vera með teymi á æfingunni. Margir aðrir aðilar frá LHG sem og öðrum stofnunum komu að æfingunni, má þar nefna þyrludeild, köfunardeild, varðskipadeild og Slökkvilið Höfðuborgarsvæðisins. Æfingin er einnig notuð til að þjálfa og prófa nýja starfmenn, þjálfa sjúkraflutningamenn í liðunum, prófa ný tæki og búnað og í sumum tilfellum nýtist æfingin sem lokaundirbúningur áður en teymin eru send erlendis til sprengjueyðingar - til landa eins og t.d Afganistan, Írak og Líbanon.

 Æfingin Northern Challenge 2008 gekk mjög vel og voru allir aðilar á þeirri skoðun að þetta hefði verið mjög góð reynsla og þjálfun fyrir liðin. Auk þess sem æfingin nýtist til upplýsingamiðlunar af ýmsu tagi. Að sögn þátttakenda gætu aðstæður á svæðinu ekki verið betri fyrir æfingu af þessu tagi.

03.10.2008/HBS

Myndirnar tóku starfsmenn sprengjudeildar LHG.

NChall_2008_Bilasprengja
Bílasprengja

NChall2008_0918_Car_Body_bombs_171
Aftenging sprengju í bíl