Vefurinn island.is veitir upplýsingar um efnahagsvandann

Mikilvægt er að sem flestir viti hvar hægt er að leita heildstæðra upplýsinga um efnahagsvandann og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Vegna þessa hafa stjórnvöld sett á fót upplýsingamiðstöð en unnið var að undirbúningur hennar innan forsætis- og utanríkisráðuneytisins en fleiri ráðuneyti koma að efnisöflun og símaþjónustu. Markmið hennar er að einfalda aðgengi almennings að upplýsingum um hvað eina sem viðvíkur efnahagsástandinu.

Á vefnum http://www.island.is/efnahagsvandinn er nú að finna á einum stað traustar og yfirgripsmiklar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi, til hvaða ráðstafana opinberir aðilar hafa gripið og hvert er hægt að leita eftir úrræðum. Á vefnum er einnig fréttaveita þar sem finna má fréttir sem tengjast efnahagsástandinu. Að auki er fyrirspurnum svarað í síma 800 1190 og í tölvupósti (midstod@island.is).

Einnig er vakin athygli á upplýsingagátt stjórnvalda gagnvart umheiminum vegna efnahagsástandsins á Íslandi á http://www.iceland.org/info. Þar verða aðgengilegar upplýsingar sem stjórnvöld vilja koma á framfæri um áhrif og viðbrögð við því ástandi sem skapast hefur og aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til. Upplýsingarnar þar eru settar fram á ensku.