Afskipti höfð af flutningaskipi sem ekki virti reglur um aðskildar siglingaleiðir

Sunnudagur 10. júlí 2010

Aðfararnótt laugardagsins hafði Landhelgisgæslan í tvígang afskipti af siglingum flutningaskipsins Green Tromsö sem sigldi ekki samkvæmt reglum um aðskildar siglingaleiðir vestur fyrir Garðskaga og suður fyrir Reykjanes. Tekin var skýrsla af skipstjóra og stýrimanni er skipið kom til Vestmannaeyja.

Bar skipstjóri við skorti á enskukunnáttu stýrimannsins sem var á vaktinni að fara að tilmælum varðstjóra Landhelgisgæslunnar. Einnig bar skipstjóri við að hann hefði ekki kynnt sér nægjanlega reglur um aðskildar siglingaleiðir og því miskilið þær. Sjá skjal sem sýnir siglingaferill skipsins.