Skemmtibátur í vandræðum við Grænland. Íslenskur togari fylgir honum.

  • Gypsylife_GudmNesi

Sunnudagur 19. september 2010

Landhelgisgæslunni barst í morgun aðstoðarbeiðni frá erlenda skemmtibátnum Gypsy Life sem var í vandræðum um 90 sjómílur Vestur af Bjargtöngum. Var báturinn á leið frá Grænlandi til Íslands með tvö um borð. Höfðu varðstjórar Landhelgisgæslunnar samband við togarann Guðmund í Nesi sem staddur var um 15 sjómílur frá bátnum. Vindhraði á svæðinu er nú 12 -14 m/sek með krappri öldu.

Fylgir nú Guðmundur í Nesi Gypsy Life á 5 – 7 sjómílna siglingu til Íslands. Einnig hefur verið óskað eftir aðstoð Varðar, björgunarskips Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði sem mun taka við fylgd bátsins þegar kemur nær landi en reiknað er með að það verði eftir um 3 ½ - 4 klukkustundir.

Mynd;

© Guðmundur Áskelsson skipverji á Guðmundi í Nesi