Fjölþjóðlegu æfingunni Northern Challenge lokið
Mánudagur 11.október 2010
Fjölþjóðlegri æfingu sprengjueyðingarsveita, Northern Challenge, lauk sl. fimmtudag eftir tveggja vikna æfingaferli. Landhelgisgæsla Íslands og NATO stóðu fyrir æfingunni sem var haldin á Keflavíkurflugvelli og á fyrrum varnarsvæðum utan hans, svo sem í höfninni í Helguvík og Patterson svæðinu.
Æfingin sem haldin var í tíunda skipti er mikilvægur þáttur í þjálfun sprengjusérfræðinga en þátttakendur hennar eru oft á tíðum teymi á leið til friðargæslu. Alls tóku 15 sprengjueyðirnarsveitir frá Danmörku, Noregi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og Austurríki þátt í æfingunni, auk sprengjueyðingarsveitar Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Eftirlitsmenn frá Belgíu og Rússlandi fylgdust auk þess með framkvæmd æfingarinnar. Margir aðrir aðilar frá Landhelgisgæslunni sem og öðrum íslenskum stofnunum komu að, má þar nefna þyrludeild, köfunardeild, varðskipadeild, Ríkislögreglustjóra, Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.
Sprengjusérfræðingur að störfum
Dansk - íslenska sprengjueyðingasveitin undirbýr sprengjueyðingu
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar hafa tekið þátt í friðargæsluverkefnum í Líbanon og Írak þar sem sett hafa verið saman teymi sem saman standa af tveimur sprengjusérfræðingum frá Landhelgisgæslunni og bráðatækni frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins. Hafa þeir unnið í nánu samstarfi við sænsku stofnunina SRSA (Swedish Rescue Services Agency) og Sameinuðu þjóðirnar. Starf þeirra hefur falist í að hreinsa sprengjur af átakasvæðum sem er þáttur í uppbyggingarstarfi því sem fer fram til að skapa friðvænleg skilyrði til framtíðar. Víða er mikið starf óunnið en talið er er að 90% þeirra sem látast af völdum sprengja á átakasvæðum séu börn. Mjög mikilvægt er að þjóðir sameinist í hreinsun svæðanna en slík hreinsun er eðli málsins samkvæmt hættuleg og mikilvægt að rétt sé að verki staðið.
Myndir © Árni Sæberg.
Varðskipið Týr tók einnig þátt í æfingunni
TF-Líf flutti sprengjusérfræðinga á vettvang
Sprengjusérfræðingar síga niður í varðskip
Vélmenni eru nauðsynleg við vinnu sprengjusérfræðinga
Leitað að "sprengju" í Helguvík

Unnið að því að gera bílsprengju óvirka.....
Bílsprengjunni eytt. Sprengingin verður mun vægari en hún hefði annars
orðið.