Þyrla LHG sækir barnshafandi konu til Vestmannaeyja

Sunnudagur 7. nóvember 2010

Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar kl. 18:19 í kvöld við að sækja barnshafandi konu til Vestmannaeyja. Vegna veðurfræðilegra aðstæðna var ekki hægt að lenda sjúkraflugvél á flugvellinum í Eyjum og var því óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ekki var um að ræða bráðaútkall og var farið í loftið kl. 19:40 frá Reykjavíkurflugvelli. Reiknað er með að þyrlan lendi í Reykjavík upp úr kl. 21:00.