Hafís sást á radar TF-SIF. Var staðsettur talsvert utan íslensku lögsögunnar

Þriðjudagur 9. nóvember 2010

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF fór í gær í eftirlits- og gæsluflug fyrir Norðurland, Vestfirði, um Vestur- og Suðvesturmið. Þegar flogið var um Vesturmið sáust á radar ís eða ísdreifar innan við 30-50 sjómílur frá strönd Grænlands . Austast var ísinn staðsettur 135 sml NNV af Horni eða 50 sjómílur fyrir utan íslensku efnahagslögsöguna. Syðst var hann 112 sml NV af Barða eða 23 sjómílur fyrir utan efnahagslögsöguna.

Í fluginu var einnig haft samband við tvö erlend skip sem ekki höfðu tilkynnt siglingu sína innan efnahagslögsögunnar til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar en annað skipanna var með bilun í auðkenningarbúnaði. Höfðu skipin leitað vars í nágrenni við landið vegna veðurs.

08112010_hafis

Úr flugskýrslu TF-SIF. Línan á myndinni eru mörk íslensku
efnahagslögsögunnar.