Danska þyrlan EH101 heimsækir Landhelgisgæsluna

Þriðjudagur 23. nóvember 2010

Ein fullkomnasta þyrla á Norður-Atlantshafi, þyrla danska flughersins Agusta Westland EH101 heimsótti Landhelgisgæsluna dagana 23.-25. nóvember. Þy
rlan var á æfingaferðalagi dönsku þyrluflugdeildarinnar ESK722 sem hófst þann 15. nóvember í Norður Noregi.

Leiðangurinn bar vinnuheitið NAVINORD (
Long-Range Navigation Exercise) og var áhöfn þyrlunnar við æfingar ásamt samstarfsaðilum nágrannaþjóðanna. Æfði þyrlusveitin með með stjórnstöð, flugdeild og varðskipi Landhelgisgæslunnar á Faxaflóa.

Fyrsta þyrlan af tegundinni EH101 var afhent danska flughernum árið 2005. Er tegundin afar öflug og nútímaleg, búin ýmsum búnaði o.s.frv. sem margur hver hefur ekki verið til staðar í eldri tegundum af björgunarþyrlum. Danski flugherinn á 14 þyrlur sömu tegundar, 8 þeirra eru notaðar við leitar- og björgunarstörf en sex þyrlur eru notaðar m.a. til flutninga á starfsmönnum danska hersins. Þessar tvær útgáfur eru eins í grunninn en innréttingar og tæknilegar útfærslur ólíkar. Björgunarþyrlurnar sem notaðar eru til leitar- og björgunarverkefna á sjó og landi, eru útbúnar sem fljúgandi bráðamóttökur. Eru þær, eins og Landhelgisgæslan með lækni í áhöfn sem tryggir sjúklingum aðstoð eins fljótt og mögulegt er.

Þyrlan Agusta Westland  EH101 er um 20 metrar að lengd  og getur borið allt að 15.600 kg. Til samanburðar má nefna að Líf, þyrla Landhelgisgæslunnar er um 16 metrar að lengd og getur borið allt að 8.600 kg. Þyrlan EH101 er búin þremur mótorum sem hefur mikil áhrif á hversu hátt þyrlan getur flogið, sem og snerpu hennar. Getur hún auk þess flogið í ísingu eins og þyrlur Landhelgisgæslunnar. Þyrla danska flughersins er búin rampi að aftan sem auðveldar göngu til og frá borði, bæði þegar um að ræða sjúklinga á börum og fjölda farþega.

 23112010Donskthyrla

Þyrlan lendir við flugskýli Landhelgisgæslunnar

DonskthyrlaIMG_0711

Ásgrímur L. Ásgrímsson, yfirmaður stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar,
Haukur Guðmundsson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, Halldór B. Nellett framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs Landhelgisgæslunnar og
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar ásamt áhöfn þyrlunnar.

28112010Donskthyrla
Hér sést  hversu smár flugvirki þyrlunnar er í raun hlutfallslega.