Hafísflug TF-SIF í desember

Við eftirlitsflug Sifjar, flugvélar Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi kom í ljós
að hafís var staðsettur næst landi um 48 sjómílur VNV af Grímsey, 46 sjómílur
ANA af Horni. 34 sjómílur norður af Skagatá og 25 sjómílur NNV af Straumnesi. Kallað
var í skip kl. 00:03 sem statt var norðaustur af Horni,  á leið til Ísafjarðar,  til að fá upplýsingar um ísinn sem hann sigldi
í gegnum. Sigldi hann þá í gegnum dreifar og þéttan ís. Um hálftíma síðar hafði
skipið samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti um ca 30 metra
háan borgarísjaka á stað: 67°10,45´N-020°14,7´V sem sást allvel í ratsjá.
Þéttleiki hafíss í næsta nágrenni var þá um 3/10

Búist er við að hafísinn kunni að færast nær landi þegar
vindur snýst í sterka norðvestanátt í dag og síðan í norðanátt.