Þyrla LHG í útkall á Brjánslæk
Föstudagur 15. apríl 2011
Landhelgisgæslunni barst kl. 18:37 í gær beiðni í gegnum Neyðarlínuna, þar sem óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar, vegna manns sem fékk hjartastopp á Brjánslæk við Breiðafjörð. Svo vel vildi til að nærstaddir kunnu skyndihjálp og hafði þeim tekist að endurlífga hann. Var þyrluáhöfn kölluð út og fór TF-GNÁ í loftið kl. 19:11. Lent var á Brjánslæk kl. 19:51 og fór þyrlan aftur í loftið tíu mínútum síðar. Var lent við skýli Landhelgisgæslunnar kl. 20:55 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti manninn á Landspítalann.