Bleikt var þema dagsins
Föstudagur 7. október 2011
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar tóku í dag þátt í árveknis- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum hjá konum með því að klæðast einhverju bleiku.
Hugmyndaflugið fékk algjörlega að ráða og voru ákveðnir aðilar sem virkilega sköruðu framúr, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Bleikt þema var ríkjandi hjá gæslunni, smellið á mynd til að stækka
Sum létu sé þó nægja að skarta bleiku slaufunni sem Landhelgisgæslan gaf konum sem starfa innan stofnunarinnar, til minningar um fyrrum samstarfskonu sem lést nýverið úr krabbameini langt um aldur fram.
Bleik þyrluáhöfn!
Sumir voru líka í bleikum undirfötum
Ekki var verra að hafa bleika fylgihluti
Sumir eru bleikari en aðrir
Jóna og Inga í þjónustuverinu voru sætar í bleiku
Níels hjá sjómælingasviði tók fram bleiku skyrtuna í tilefni dagsins
Sjöfn, Snjólaug og Þórður voru með bleiku slaufuna
Allir fengu pizzu í tilefni dagsins