Sprunga í framrúðu við flugtak TF-GNA

Þriðjudagur 3. janúar 2011

Við flugtak TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar í morgun kom sprunga í framrúðu þyrlunnar. Ákveðið var að snúa þyrlunni til flugvallar og skoða skemmdirnar. Leyfilegt er að nota þyrluna í neyðar- og björgunarflug en von er á nýrri rúðu til landsins á morgun, miðvikudag.

Að sögn flugtæknideildar var engin hætta á ferðum. Ekki sé óalgengt að brestur komi í rúður loftfara. Gerðist það í morgun að öllum líkindum vegna kuldans.

Mynd GSV