TF-SIF í ískönnun við Vestfirði - tveir borgarísjakar við Horn
Fimmtudagur 8. mars 2012
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar fór í gær í eftirlits- og æfingaflug sem m.a. var nýtt til ískönnunar við Vestfirði.
Þegar svæðið undan Horni var rannsakað með eftirlitsbúnaði flugvélarinnar kom í ljós að á svæðinu eru tveir borgarísjakar, sá minni ca 80x80m að flatarmáli og ca 40m á hæð en sá stærri 235x100m og u.þ.b. 60m á hæð. Þá var eitthvað um íshröngl í grennd við jakana en einnig að sjá dýpra á Hornbankanum. Hafísröndin var (smkv. ratsjá) næst landi um 70sml NNV af Straumnesi.
Er þetta borgarískjaki sem tilkynnt var um fyrir nokkrum dögum og virðist sem hann hafi brotnað í tvennt og rekið austar á svæðinum
Í fluginu var einnig miðaður út neyðarsendir sem féll útbyrðis af togara í fyrrinótt. Miðað var bæði á 406MHz og 121,5MH og fengust ágæt krossmið sem gáfu stað um 0,2sml í radíus.
Stærri jakinn er á stað: 66°25,3´N-022°12,6´V eða 5,2 sjml. ASA af Horni.
Minni jakinn er á stað: 66°24,5´N-022°08,0´V eða 7,3 sjml. ASA af Horni.
Stærri ísjakinn er 235x100m og u.þ.b. 60m á hæð
Minni ísjakinn mældur. Hann er ca 80x80m að flatarmáli og ca 40m á hæð
Horn sést efst til vinstri á myndinni. Ísjaki fyrir miðju og hægra megin.
Minni ísjakinn mældur.
Stærri ísjakinn