TF-GNA kölluð út eftir óhapp í Flatey á Breiðafirði

  • GNA3_BaldurSveins

Föstudagur 6. apríl 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar,  TF-GNA var kölluð út kl. 13:48 í dag eftir að barn varð fyrir óhappi í Flatey á Breiðafirði. Farið var í loftið kl. 14:22 og flogið beint í Flatey þar sem lent var kl. 15:30. Sjúklingur var þá fluttur um borð í þyrluna og var farið nýju í loftið stundarfjórðungi síðar.

Lent var við flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli kl. 16:29 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti sjúkling ásamt aðstandanda á Landspítalann.