Færeyskur línubátur staðinn að meintum ólöglegum veiðum

  • SYN

Fimmtudagur 19. apríl 2012

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SYN stóð í morgun færeyskan línubát að meintum ólöglegum veiðum innan hrygningarstoppssvæðis suður af Vestmannaeyjum. Var skipstjóra gert að ljúka við að draga línuna og halda síðan til hafnar í Vestmannaeyjum þar sem skýrslutaka mun fara fram.

Sjá kort á heimasíðu Fiskistofu af svæðum sem eru lokuð vegna hrygningarstopps.

http://www.fiskistofa.is/fiskveidistjorn/veidibann/hrygningarstopp/