Landhelgisgæslan við eftirlit á Breiðafirði

  • OKHullbatur1

Föstudagur 25. maí 2012

Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar, með fulltrúum Fiskistofu hafa að undanförnu verið við eftirlit á Breiðafirði sem m.a. hefur falist í  í að fara um borð í báta og kanna veiðileyfi, haffæri, lögskráningu og fleira.

EftirlitBreidafjordur27052012
Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar með starfsmönnum Fiskistofu.

Báturinn sem notaður er við eftirlitið er harðbotna slöngubátur  frá fyrirtækinu OK Hull sem var afhentur Landhelgisgæslunni í vor og verður prófaður á næstu mánuðum við ýmsar aðstæður.  Er þetta í fyrsta sinn sem eftirlit á þessu svæði fer fram með bát að þessari stærðargráðu en í fyrra var sambærilegu eftirliti sinnt afBaldri, eftirlits- og sjómælingaskipi LHG. Stefnt er að eftirliti um allt land út ágúst og verður ekið með bátinn milli hafna á landinu og hann sjósettur á ýmsum stöðum. Verkefnið er samstarfsverkefni Landhelgisgæslunnar, lögreglunnar, Fiskistofu og fleiri stofnana.

Sjá frétt um samstarfsverkefni LHG og OK Hull.