Sviðsett að F-15 þota lendi í sjónum
Fimmtudagur 31. maí 2012
Síðdegis í gær fór fram björgunaræfing á austanverðum Faxaflóa með þátttöku Landhelgisgæslunnar og flugsveitar Bandaríkjamanna sem hefur verið við loftrýmisgæslu frá 8. maí. Þátttakendur í æfingunni voru varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar, fulltrúar flugsveitar og C-130 leitar- og björgunarflugvélar Bandaríkjamanna auk stjórnstöðva Landhelgisgæslunnar í Keflavík og Reykjavík.
Þór bíður eftir þátttakendum æfingarinnar
Æfingin hófst kl. 17:53 með því að flugmaður F-15 þotunnar (sem þá var staðsettur í varðskipinu Þór) sendi út neyðarkall og tilkynnti til stjórnstöðva að flugvélin hefði lent í sjónum og flugmaður hefði náð að skjóta sér út. Hófst þá atburðarás sem fólst í að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar (LHG) í Keflavík (CRC-Control and Reporting Centre) tilkynnti það til stjórnstöðvar LHG í Reykjavík sem kallaði út þyrlu, hafði samband við varðskip á svæðinu og aðra hugsanlega björgunaraðila. Sett var á svið að C-130 leitar- og björgunarflugvél Bandaríkjamanna færi í loftið frá Keflavík og köstuðu út björgunarbáti nálægt lendingarstað flugmannsins og stukku björgunarliðar þeirra í sjóinn í fallhlíf.
Áhöfn v/s ÞÓR og þátttakendur frá flugsveit BNA fara yfir skipulag æfingarinnar
Klárir í göllunum
Nokkuð nákvæm staðsetning var til staðar og fór þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNA í loftið kl 19:00 og hélt beint á ætlaðan slysstað, var þá flugmaðurinn, ásamt tveimur fallhlífarstökkvurum (para jumpers (PJ)), komnir í björgunarbátinn með ýmsan björgunarbúnað. Þegar komið var á staðinn seig sigmaður TF-GNA niður til mannanna og hífði þá upp í björgunarlykkju. Voru mennirnir staðsettir í léttabát varðskipsins Þórs þar til skömmu áður en þyrlan kom á vettvang. Gekk æfingin ágætlega og voru allir sáttir að henni lokinni.
Hér er frétt um æfinguna frá vefriti US Airforce.
Þar segir Walter Ehrat flugstjóri þyrlu Landhelgisgæslunnar m.a. að nokkrum sinnum á ári taka þyrlur LHG þátt í björgunaræfingum með öðrum þjóðum. Skiptast á reynslu, verkferlum og hitta erlenda samstarfsaðila. Slíkt er mjög gagnlegt og getur jafnvel leitt til breytingar á búnaði og verkferlum þyrlusveitarinnar.
Léttabátur siglir á áætlaðan björgunarstað
Staðurinn merktur á korti
TF-GNA hífir upp flugmanninn og fallhlífarstökkvarana
Léttabáturinn kemur tilbaka að lokinni æfingu
Vell heppnaðri æfingu lokið og haldið tilbaka