Sjóslysaæfing á Skjálfanda og Húsavík

  • _IB_3032

Almannavarnanefnd Þingeyinga og embætti Lögreglustjórans á Húsavík standa fyrir sjóslysaæfingu á Skjálfanda og á Húsavík laugardaginn 9. júní nk. í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna.  

Æfð verða viðbrögð við bruna um borð í hvalaskoðunarskipi.  Markmið æfingarinnar eru einkum að prófa nýja viðbragðsáætlun sem ber yfirskriftina:  „Sjóslys á Skjálfanda: Hópslys á Húsavík – hvalaskoðunarbátar og önnur farþegaskip“.  Fjarskiptamál verða könnuð sérstaklega ásamt flæði þolenda frá slysstað á sjúkrahús.  Þá er það meginmarkmið að kanna hvort viðbragðsaðilar í umdæmi lögreglunnar á Húsavík hafi nægar bjargir til að takast á við hópslys á sjó.

Undirbúningur æfingarinnar hefur staðið yfir um nokkra hríð og byggir á skipulagi og fræðslu fyrir þátttakendur en það eru lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, deildir Rauða kross Íslands og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.  Samráðshópur áfallahjálpar í umdæminu mun einnig taka þátt í æfingunni.  Fræðslan er í höndum ráðgjafa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslu, Sjúkrahúsinu á Akureyri, Slökkviliði Akureyrar, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á Akureyri, Rauða krossi Íslands og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.  Neyðarlínan mun sjá um boðun viðbragðsaðila til æfingarinnar og verður boðunaræfing haldin fimmtudaginn 7. júní nk. 

Sjóslysaæfingin verður sett í íþróttahöllinni á Húsavík kl. 9.00 að morgni laugardagsins 9. júní og er gert ráð fyrir að rýnifundur vegna æfingarinnar hefjist að henni lokinni kl. 13.30 sama dag.  Söfnunarsvæði slasaðra verður í húsnæði Björgunarsveitarinnar Garðars en jafnframt verður fjöldahjálparstöð opnuð í  Borgarhólsskóla.

Búast má við að umferð um hafnarsvæðið verði takmörkuð meðan á æfingu stendur.

Mynd Árni Sæberg