Yfirmaður portúgölsku flugsveitarinnar í heimsókn
Miðvikudagur 29. ágúst 2012
Yfirmaður herafla Portúgals, General Luís Araújo kom í gær, ásamt fylgdarliði til landsins og átti fund meðfulltrúum utanríkisráðuneytisins og Landhelgisgæslu Íslands. Í heimsókninni heimsótti General Araújo einnig portúgölsku flugsveitina sem nú annast loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland, spjallaði við liðsmenn hennar og kynnist helstu verkefnum.
Við komuna til Íslands flugu portúgölsku F-16 þoturnar á móti General Araújo og fylgdarliði hans og var þá þessi mynd tekin.
Að loknum fundi var haldið í skoðunarferð um Reykjanes þar sem m.a. heimsótt var Brú milli Heimsálfa, sýningin Orkuverið Jörð í Reykjanesvirkjun, Gunnuhver og Bláa lónið.